Fótbolti

Ronaldo tryggði Real Madrid sigur

Elvar Geir Magnússon skrifar

Real Madrid heldur áfram að elta Barcelona en liðin berjast um spænska meistaratitilinn. Real er stigi á eftir Börsungum þegar þrjár umferðir eru eftir.

Portúgalinn Cristiano Ronaldo var hetja Real í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Osasuna á 89. mínútu. Real vann leikinn 3-2.

Ronaldo skoraði tvö mörk í leiknum og Marcelo eitt. Carlos Aranda og Vadocz skoruðu fyrir Osasuna sem komst tvívegis yfir í leiknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×