Körfubolti

Jackson sektaður fyrir að gagnrýna dómara

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Hinn goðsagnakenndi þjálfari LA Lakers, Phil Jackson, var allt annað en sáttur við dómara leiks síns liðs og San Antonio um helgina og lét þá heyra það eftir leikinn.

Þó svo Jackson sé afar virtur þá kunnu yfirmenn NBA-deildarinnar ekki að meta framlag Jackson að þessu sinni og sektuðu hann um 35 þúsund dollara fyrir ummælin.

Jackson var afar pirraður eftir leikinn og hugsanlega ekki síst út í sína eigin leikmenn sem eru að gefa nokkuð eftir þessa dagana.



 
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×