Fótbolti

Benitez eða Mourinho tekur við Real í sumar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Fyrrum bakvörður Real Madrid, Michel Salgado, telur afar líklegt að Real muni reyna að fá Rafa Benitez, stjóra Liverpool, til þess að taka við liðinu í sumar.

Benitez byrjaði þjálfaraferil sinn hjá Real og hefur verið sterklega orðaður við endurkomu til Spánar.

Manuel Pellegrini stýrir Real Madrid sem stendur en hann er ekki talinn eiga mikla framtíð hjá félaginu.

„Gæti Benitez tekið við Real í sumar? Af hverju ekki? Rafa er mjög virtur þjálfari á Spáni. Hann vann deildina tvisvar með Valencia og kom þeim tvisvar í úrslit Meistaradeildarinnar," sagði Salgado sem lék í 10 ár með Real.

„Við skulum fyrst sjá hvort Real getur unnið deildina í ár. Ég held að það verði samt barátta á milli Benitez og Mourinho í sumar."

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×