Ótvíræð tengsl milli Ólafs og Al-Thani kaupa í Kaupþingi 12. apríl 2010 11:33
Rannsóknarnefnd Alþingis kemst að þeirri niðurstöðu að ótvíræð tengsl hafi verið á milli Ólafs Ólafssonar og kaupa Al-Thani á Kaupþingsbréfunum haustið 2008.„Ólafur kom á sambandi Al-Thani og bankans, en í september 2008 samþykkti lánanefnd Kaupþings nokkur lán til Al-Thani og félaga sem honum tengjast, eitt þeirra sneri að fjármögnun á kaupumAl-Thani á hlutabréfum í Kaupþingi, en hann keypti rúm 5% í bankanum í lok september 2008. Gögn bankans sýna ótvíræð tengsl á milli Ólafs Ólafssonar og kaupa Al-Thani á Kaupþingsbréfunum," segir í skýrslunni.Hluti lánsins er greiddur inn á reikning Serval, félags í eigu Al-Thani, hinn hlutinn er greiddur inn á reikning Gerland, félags í eigu Ólafs Ólafssonar. Fjárhæðin er síðan flutt yfir á reikning Choice Stay, sem er félag í eigu sheikhsins og Ólafs, og þaðan er andvirðið síðan flutt yfir á vörslureikning Q Iceland Finance sem fjármagnaði Kaupþingsbréfin.Samkvæmt minnisblaði innri endurskoðunar Kaupþings frá 21. Janúar 2009 er Serval-lánið uppgreitt í október 2008, fyrst með greiðslu frá Brooks Trading, félagi í eigu Al-Thani, þann 8. október, 12,5 milljörðum króna, og síðan með greiðslu frá Ólafi Ólafssyni þann 21. október að fjárhæð 402 milljónir króna.Brooks Trading fékk lánaðar 50 milljónir dollara 19. September 2008 frá Kaupþingi undir því yfirskini að það væri fyrirframgreiddur hagnaður af viðskiptum með lánshæfistengd skuldabréf. Þetta lán er síðan framlengt 30. september 2008.Hinn 8. Október 2008 skiptir Brooks Trading 50 milljónum dollara í krónur í Kaupþingi í Lúxemborg á 250 kr. fyrir dollarann og sama dag greiðir það 12,5 milljarða króna í láni Serval Trading eins og áður kom fram. Þannig er ljóst að lánið var borgað upp með láni frá Kaupþingi. Lánið til Gerland er enn ógreitt í janúar 2009. Það var án ábyrgðar.
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Greiðsluáskorun Samstarf Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Viðskipti innlent Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Búið að afvopna neytendur Neytendur Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Viðskipti innlent Engin málamiðlun þegar kemur að krafti Polestar 4 Samstarf Búið að bjóða í Skagann 3X Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Sjá meira