Fótbolti

Xavi: Mourinho kveikir í okkur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Xavi fagnar marki gegn Real.
Xavi fagnar marki gegn Real.

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur gert allt sem hann getur til þess að koma leikmönnum Barcelona úr jafnvægi en Xavi, miðjumaður Barcelona, hefur nú greint frá því að liðið noti Mourinho til þess að hvetja sig áfram.

Xavi segist bera mikla virðingu fyrir Mourinho og það sé af virðingu við Mourinho sem leikmenn Barca séu á tánum.

"Ég ber gríðarlega mikla virðingu fyrir Mourinho sem er mikilvægur fyrir okkar lið því hann kveikir í okkur," sagði Xavi.

Hann segir enn fremur að þjálfarinn sinn, Pep Guardiola, eigi eftir að marka sinn sess í sögunni á stærri hátt en Mourinho.

"Inter vann Meistaradeildina en Mourinho verður ekki minnst sem þjálfara sem kom með eitthvað nýtt inn í leikinn. Það hefur Guardiola aftur á móti gert."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×