Fótbolti

Pellegrini ekki hræddur um að verða rekinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Manuel Pellegrini.
Manuel Pellegrini.

Það má ekki mikið út af bregða til að Real Madrid reki þjálfara sinn.

Eftir tapið gegn Lyon í Meistaradeildinni hafa sögur um að Manuel Pellegrini verði látinn taka pokann sinn orðið háværari.

„Ég finn ekki fyrir neinni pressu. Samband mitt við félagið er gott og ég hef ekki minnsta ótta um að missa starfið," sagði Pellegrini sem neitar því að hafa lent upp á kant við stjórnarmenn félagsins eins og einhverjir fjölmiðlar hafa haldið fram.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×