Fótbolti

Pellegrini og Diarra rifust

Elvar Geir Magnússon skrifar

Lassana Diarra, betur þekktur sem Lass í herbúðum Real Madrid, er ósáttur við hvernig hefur verið komið fram við hann í síðustu leikjum.

Hann og Manuel Pellegrini, þjálfari Real Madrid, rifust á æfingasvæði félagsins í vikunni samkvæmt frétt spænska blaðsins Marca. Reiknað er með að Diarra verði látinn dúsa á tréverkinu í næsta leik.

Þessar deilur Diarra og Pellegrini gætu opnað leið fyrir Fernando Gago í byrjunarlið Real Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×