Fótbolti

Forlan verður ekki seldur frá Atletico

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Atletico Madrid segir ekkert hæft í þeim orðrómum að félagið ætli sér að selja Diego Forlan sem var valinn besti leikmaður HM í Suður-Afríku.

Juventus hefur verið orðað við leikmanninn sem og endurkoma til Man. Utd. Tottenham hefur einnig áhuga.

"Það hefur ekkert alvöru tilboð komið í leikmanninn. Þess vegna erum við alveg rólegir. Það er heldur ekki ætlun okkar að selja Forlan. Hann er líka hamingjusamur hjá okkur og þess vegna er best fyrir alla að láta hann vera," sagði Enrique Cerezo, forseti Atletico.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×