Fótbolti

Real Madrid ætlar að stela Fabregas frá Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Margir telja það aðeins tímaspursmál hvenær Cesc Fabregas gangi í raðir Barcelona. Þrátt fyrir það ætlar Real Madrid að reyna að stríða erkióvini sínum og stela Fabregas undan nefinu á Barca.

Hermt er að Real Madrid sé að undirbúa 35 milljón punda tilboð í kappann. Takist Madrid að kaupa Fabregas frá Arsenal má gera ráð fyrir að allt yrði vitlaust í Katalóníu.

Málið er sem fyrr flókið enda er leikmaðurinn samningsbundinn Arsenal til ársins 2015 og Lundúnaliðið hefur engan áhuga á því að selja fyrirliðann sinn.

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, sér Fabregas fyrir sér sem hinn fullkomna félaga Xabi Alonso á miðu Madridarliðsins og gæti boðið Arsenal einhverja leikmenn plús pening fyrir Fabregas. Þá er aldrei að vita hvað gerist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×