Fótbolti

Mourinho: Heimurinn er að bíða eftir þessum leik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mourinho vætir hér kverkarnar á blaðamannafundi fyrir leikinn. Nordic Photos/AFP
Mourinho vætir hér kverkarnar á blaðamannafundi fyrir leikinn. Nordic Photos/AFP vísir/getty
Spánn nötrar því í kvöld fer fram fyrsti El Clásíco-leikurinn síðan José Mourinho tók við Real Madrid. Hann fer með lærisveina sína á Camp Nou í kvöld í rosalegum toppslag í spænsku deildinni.

Aldrei þessu vant er Mourinho ekki að spenna bogann fyrir leik heldur hefur hann reynt að keyra mikilvægi leiksins niður.

"Allir leikir skipta máli. Þessi er vissulega mikilvægur en hann mun ekki skera úr um hvort liðið verður meistari. Ef við vinnum þá fer næsti dagur þriðjudagur. Ef við töpum þá kemur líka þriðjudagur daginn eftir," sagði Mourinho en Real hefur ekki tapað leik í deildinni undir hans stjórn.

"Heimurinn er að bíða eftir þessum leik og það er okkar skylda að gefa heiminum leikinn sem það bíður eftir. Þarna mætast tvö frábær lið með mögnuðum leikmönnum. Það er allt til staðar og vonandi verður þetta frábær leikur. Vonandi hjálpa leikmenn dómaranum og ég vona að fólk tali um fallega hluti eftir leikinn."







Mourinho er duglegur að benda á það séu margir leikir eftir af mótinu og að hans lið megi ekki láta það slá sig út af laginu ef það tapar í kvöld.

"Ef við töpum þá vona ég að það hafi ekki áhrif á sjálfstraustið hjá okkur. Ef við vinnum þá vona ég að sama skapi að leikmenn verði með báðar fætur á jörðinni," sagði Mourinho.

"Við verðum að gera okkur grein fyrir því að tímabilið er tíu mánuðir. Ég er viss um að við höldum ró okkar, sama hvernig fer."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×