Viðskipti innlent

Gengi hlutabréfa Century Aluminum hækkaði um 4,61 prósent

Gengi hlutabréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, hækkaði um 4,61 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta hækkun dagsins. Á sama tíma hækkaði gengi hlutabréfa Eik banka í Færeyjum um 1,78 prósent og stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 1,08 prósent. Gengi hlutabréfa Bakkavarar féll um 3,23 prósent. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,1 prósent og endaði í 945 stigum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×