Fótbolti

Fyrsta tap Barcelona í deildinni staðreynd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld.

Atletico Madrid varð fyrst allra liða í spænsku deildinni í vetur til þess að leggja meistarana af velli.

Atletico vann góðan heimasigur, 2-1, þegar Barca mætti í heimsókn í kvöld.

Diego Forland kom Atletico yfir snemma leiks og Simao Sabrosa bætti öðru marki við beint úr aukaspyrnu. Markið skrifast reyndar að stóru leyti á Victor Valdes markvörð.

Zlatan Ibrahimovic minnkaði muninn fyrir hlé með sínu fyrsta marki á árinu en lengra komst Barca ekki.

Eftir leikinn í kvöld hefur Barcelona aðeins tveggja stiga forskot á Real Madrid á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×