Fótbolti

Zlatan og Kaka ekki í stórleiknum á morgun

Elvar Geir Magnússon skrifar
Zlatan Ibrahimovic  meiddist á kálfa í upphitun fyrir leik gegn Athletic Bilbao um síðustu helgi.
Zlatan Ibrahimovic meiddist á kálfa í upphitun fyrir leik gegn Athletic Bilbao um síðustu helgi.

Ljóst er að Zlatan Ibrahimovic verður ekki tilbúinn í tæka tíð fyrir El Clasico, risaslag Barcelona gegn Real Madrid annað kvöld. Zlatan er meiddur á kálfa og lék ekki gegn Arsenal á þriðjudag.

Hjá Real Madrid er brasilíski snillingurinn Kaka á meiðslalistanum og einnig vinstri bakvörðurinn Eric Abidal. Þeir leika ekki á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×