Fótbolti

Zlatan hefur ekki áhyggjur af markaþurrðinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nordic Photos / AFP

Svíinn Zlatan Ibrahimovic byrjaði með gríðarlegum látum hjá Barcelona. Hann hefur aftur á móti ekki enn náð að skora á nýju ári en framherjinn hefur engar áhyggjur af því.

„Þetta er ekkert til þess að hafa áhyggjur af og hefur gerst áður - á fyrsta árinu hjá Ajax, í upphafi hjá Juve og síðar hjá Inter. Auðvitað er mikilvægt fyrir framherja að skora mörk en þau skipta ekki öllu máli," sagði Zlatan.

Zlatan segir einnig að hann sé að fá mikinn stuðning frá þjálfaranum, Pep Guardiola, sem sé ánægður með hversu vel hann spili fyrir liðið.

„Stoðsending er eins og mark og það gleður félagana. Fyrir mér er jafn mikilvægt að leggja upp mörk eins og að skora þau. Ég veit síðan að ég mun byrja að skora á nýjan leik og það fyrr frekar en síðar."



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×