Körfubolti

NBA: Góður sigur hjá Chicago

Elvar Geir Magnússon skrifar
Kobe Bryant.
Kobe Bryant.

Chicago Bulls vann sannfærandi sigur á Toronto Raptors í NBA-deildinni í nótt. Mikivægt fyrir Chicago sem er að berjast við Toronto um lokasætið í í úrslitakeppni Austurdeildarinnar.

Chicago er einum sigri á undan Raptors þegar tveir leikir eru eftir og því í fínni stöðu að ná sætinu.

Orlando vann Cleveland í viðureign toppliða Austurdeildarinnar en úrslit leiksins breyta engu því liðin eru örugg í efstu sætum.

Kobe Bryant var mættur aftur í lið Los Angeles Lakers eftir frí en það dugði þó ekki til, liðið tapaði fyrir Portland.

Hér að neðan má sjá úrslit næturinnar.

Cleveland - Orlando 92-98

Laker - Portland 88-91

New York - Miami 98-11

Toronto - Chicago 88-104

New Orleans - Minnesota 114-86

Golden State - Oklahoma 120-117

Phoenix - Houston 116-106



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×