Fótbolti

Hver í andskotanum þykist Mourinho vera?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, er virtur og vinsæll en hann er ekki allra. Hann er til að mynda ekki hátt skrifaður hjá Manuel Preciado, þjálfara Sporting Gijon.

Sá segir að Mourinho sé þorpari og að vera með honum sé að vera í slæmum félagsskap.

Preciado er augljóslega enn pirraður yfir þeim ummælum Mourinho að Sporting hefði stillt upp veiku liði gegn Barcelona þar sem liðið hefði verið búið að tapa fyrir fram.

"Mér líkar ekki við Mourinho og ég mun segja það í andlitið á honum. Hver í andskotanum þykist þessi gaur vera? sagði Preciado reiður.

"Hann fullyrti að við hefðum gefið leikinn gegn Barcelona. Ef hann myndi halda því fram í dag að þetta hefði verið brandari þá er það lélegur brandari. Honum er alvara og því er hann þorpari og slæmur félagsskapur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×