Fótbolti

De Gea: Ég verð áfram hjá Atletico

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
David De Gea, markvörður Atletico Madrid á Spáni, segist ekki ætla að fara frá félaginu í bráð en hann hefur verið orðaður við Manchester United.

De Gea er tvítugur en er þegar orðinn aðalmarkvörður Atletico en hann leikur einnig með spænska U-21 landsliðinu.

„Stuðningsmennirnir geta tekið því rólega, ég verð áfram hér. Ég er afslappaður og tel enga ástæðu til að fara annað," sagði De Gea í viðtali á heimasíðu Atletico.

„Ég er mjög hamingjusamur hjá félaginu. Hér hef ég verið allt mitt líf og þetta er frábært félag sem á allt gott skilið."

„Atletico hefur gefið mér allt. Það er mikið hrós að félag eins og Manchester United hafi áhuga en hér vil ég vera."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×