Fótbolti

Barcelona og Real Madrid unnu bæði stórsigra í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gabriel Milito skoraði fyrir Börsunga í kvöld.
Gabriel Milito skoraði fyrir Börsunga í kvöld. Mynd/AP
Barcelona og Real Madrid komust bæði örugglega áfram í 16 liða úrslit spænska Konungsbikarsins í gær eftir stórsigra á heimavelli sínum.

Real Madrid vann 5-1 sigur á Murcia en liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum. Esteban Granero og Gonzalo Higuain komu Real í 2-0 í fyrri hálfleik og þeir Cristiano Ronaldo, Karim Benzema og Xabi Alonso bættu síðan við mörkum í seinni hálfleik.

Barcelona vann einnig 5-1 sigur á Nývangi en Börsungar voru í góðum málum eftir 2-0 sigur á Ceuta í fyrri leiknum.

Nolito og Gabriel Milito komu Barcelona í 2-0 eftir sex mínútur og ceuta var síðan manni færri frá 26. mínútu. Guzmán minnkaði muninn fyrir Ceuta áður en Pedro Rodríguez, Bojan Krkic og Lionel Messi bættu við mörkum í seinni hálfleiknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×