Fótbolti

„Barcelona er ljósárum á undan Real Madrid“

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Sergio Ramos leikmaður Real Madrid ýtir hér við Carles Puyol í gær en Ramos fékk rautt spjald í kjölfarið.
Sergio Ramos leikmaður Real Madrid ýtir hér við Carles Puyol í gær en Ramos fékk rautt spjald í kjölfarið. Nordic Photos/Getty Images

Fjölmiðlar í Evrópu og víðar hrósa Barcelona liðinu mikið í dag í umfjöllun sinni um stórleik gærkvöldsins í spænsku knattspyrnunni þar sem Börsungar gjörsigruðu Real Madrid, 5-0, í hinum eina sanna El Clásico.

Flestir fótboltasérfræðingar áttu von á jöfnum leik en fáir áttu von á 5-0 stórsigri heimamanna á Nou Camp. „Barcelona er ljósárum á undan Real Madrid," var ein fyrirsögnin í íþróttadagblaðinu Sport sem gefið er út í Katalóníu.

„Það þarf ekkert að ræða þetta frekar. Barcelona er ljósárum á undan Real Madrid. Það elska allir hraða sóknarleikinn sem Barcelona býður uppá. Leikstíll Mourinho er leiðinlegur, hann kann að verjast og sækja hratt, en þegar þau vopn eru slegin úr höndum hans þá hefur hann engin svör," bætir greinarhöfundur við.

Enska dagblaðið The Guardian telur að leikurinn í gær hafi verið einn stærsti „El Clásico" leikurinn seinni tíma. „Leikmenn Barcelona framkvæmdu ótrúlega hluti og þegar þeir lentu í vandræðum á hættulegum stöðum þá spiluðu þeir sig í gegnum vörn Real Madrid. Ekkert annað lið getur gert slíkt."

Ítalska íþróttadagblaðið Gazzetta dello Sport segir í fyrirsögn að Barcelonaliðið hafi verið guðdómlegt og niðurlægt Mourinho með snilldartilþrifum.

Spænska íþróttadagblaðið Marca sem gefið er út í Madrid hrósaði Barcelona liðinu en beindi samt sem áður spjótum sínum að Eduardo Iturralde Gonzalez, dómara leiksins. Blaðamenn Marca töldu að David Villa hafi verið rangstæður þegar hann skoraði þriðja mark Barcelona og einnig að Ronaldo hefði átt að fá vítspuyrnu þegar Valdes markvörður virtist brjóta á sóknarmanninum.

„Eftir 18 mínútur var staðan 2-0 fyrir Barcelona þar sem Xavi, Villa og Messi, sýndu tilþrif sem virtust vera frá öðru stjörnukerf," segir m.a. í Marca.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×