Fótbolti

Barcelona sundurspilaði Real Madrid - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AP
Börsungar fóru illa með erkifjendur sína í Real Madrid í El Clasico leiknum í Katalóníu í kvöld en Barcelona sundurspilaði lærsveina Jose Mourinho og vann leikinn 5-0. Þetta var stærsti sigurinn í El Clasico í síðan Real Madrid vann 5-0 sigur á Barcelona í janúar 1995.

David Villa skoraði tvö mörk og þeir Xavi Pedro og Jeffren skoruðu allir eitt mark. Lionel Messi komst ekki á blað en lagði upp bæði mörkin fyrir Villa með frábærum sendingum.

Ljósmyndarar AP-fréttastofunnar náðu mörkum frábærum myndumk sem lýsa vel gangi mála á Nývángi í kvöld.

Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.



Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP
Mynd/AP



Fleiri fréttir

Sjá meira


×