Fótbolti

Barcelona tilbúið að hækka laun Messi enn frekar

Elvar Geir Magnússon skrifar
Messi á ströndinni.
Messi á ströndinni.

Barcelona er tilbúið að bjóða Lionel Messi nýjan samning og hærri laun til að fæla frá áhuga Manchester City. Messi skrifaði undir nýjan samning við Börsunga á síðasta ári og er bundinn félaginu til 2016.

Hann er sem stendur launahæsti knattspyrnumaður heims en Barcelona er reiðubúið að hækka launin enn frekar og senda þau skilaboð að leikmaðurinn sé einfaldlega ekki til sölu.

Talið er að Messi sé í dag með um 9,5 milljónir punda í árslaun eftir skatta.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×