Fótbolti

Van Gaal: Spiluðum ótrúlegan fótbolta

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Van Gaal sést hér á hliðarlínunni í kvöld.
Van Gaal sést hér á hliðarlínunni í kvöld.

Hinn hollenski þjálfari FC Bayern, Louis Van Gaal, var í skýjunum með frammistöðu síns liðs gegn Man. Utd í Meistaradeildinni í kvöld.

„Það var ótrúlegt að lenda 1-0 undir svona snemma og við þurftum alveg tíu mínútur til þess að jafna okkur. Síðan spiluðum við ótrúlegan fótbolta gegn frábæru liði," sagði Van Gaal.

„Við eigum góða möguleika í Manchester því við getum alltaf skorað á útivelli."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×