Fótbolti

Mourinho: Ronaldo er betri en Messi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo er kominn til Íslands og verður á Laugardalsvelli annað kvöld.
Ronaldo er kominn til Íslands og verður á Laugardalsvelli annað kvöld.

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur haft þann sið að hampa stórstjörnum þeirra liða er hann stýrir. Hann hefur iðulega verið óhræddur við að kalla þá bestu leikmenn heims.

Það hefur ekkert breyst eftir að hann kom til Real því hann hefur nú lýst því yfir að Cristiano Ronaldo sé besti leikmaður heims og betri en Lionel Messi.

"Það eru tveir yfirburðamenn - Cristiano og Messi. Ég er ekki í vafa, Cristiano er númer eitt og Messi númer tvö," sagði Mourinho ákveðinn að vanda.

Mourinho sagði einnig að ef hann mætti velja sér bikar til þess að vinna á þessari leiktíð þá væri hann til í að verja Meistaradeildartitilinn sem hann vann með Inter á síðustu leiktíð.

"Ég vil ekki hljóma eigingjarn en ég vil vinna Meistaradeildina svo ég geti varið titilinn sem ég vann. Sigur þar myndi einnig setja Real á stall þar sem félagið á heima."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×