Innlent

Vita ekki hvenær öllu lýkur

Fyrst í stað leggur SP-Fjármögnun áherslu á að ljúka endurútreikningi á þeim samningum þar sem einn og sami lántaki hefur verið skráður frá upphafi. Stefnt er að því að þeirri vinnu verði lokið eigi síðar en fimmtudaginn 7. október næstkomandi.

„Ekki liggur ljóst fyrir hvenær endurútreikningi annarra samninga lýkur en kappkostað er að þeirri vinnu ljúki eins fljótt og kostur er. Hér er sérstaklega átt við samninga sem hafa verið yfirteknir af öðrum leigutaka," segir í tilkynningu félagsins í gær. - óká






Fleiri fréttir

Sjá meira


×