Fótbolti

Lampard: Við vorum betri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lampard rífst við Cambiasso í kvöld.
Lampard rífst við Cambiasso í kvöld.

Frank Lampard, miðjumaður Chelsea, var jákvæður þrátt fyrir tapið gegn Inter á San Siro í kvöld.

„Það er enn eftir einn leikur í London. Mér fannst við vera betra liðið í kvöld á meðan þeir beittu skyndisóknum," sagði Lampard og hrósaði gamla stjóranum sínum.

„Jose Mourinho er afar snjall í að leggja upp leiki en við náðum útivallarmarki og ef við spilum álíka vel í seinni leiknum eigum við góðan möguleika á því að fara áfram," sagði Lampard en hann vildi ekki tjá sig um vítið sem Chelsea átti að fá.

Hann sagðist hafa verið of langt frá atvikinu og ekki séð það almennilega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×