Innlent

Enn hlynntur niðurfellingu

Þór Saari.
Þór Saari.

Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, segist enn hlynntur almennri niðurfellingu eftir að hafa séð útreikninga sérfræðingahóps ríkisstjórnarinnar.

Hann segir kolranga framsetningu að tala um kostnað við hverja leið án þess að reikna kostnaðinn við að gera ekki neitt, sem geti orðið verulega hár.

Hann segir almenna niðurfellingu nýtast mun fleirum en þeim verst settu, fjöldi fólks geti rétt haldið sér á floti og ekki sé langt í að sá hópur gefist upp. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×