Fótbolti

Messi með tvö mörk í sannfærandi sigri Barcelona á Villarreal

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Maraskorar Barcelona í kvöld,  Lionel Messi, Xavi og Bojan, fagna einu markanna.
Maraskorar Barcelona í kvöld, Lionel Messi, Xavi og Bojan, fagna einu markanna. Mynd/AP
Barcelona náði fjögurra stiga forskoti á Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 4-1 útisigur á Villarreal í kvöld. Lionel Messi skoraði tvö mörk í leiknum og hefur því skorað 29 deildarmörk á tímabilinu.

Barcelona skoraði þrjú markanna í fyrri hálfleik. Lionel Messi skoraði það fyrsta á 19. mínútu eftir sendingu frá Xavi, Xavi skoraði sjálfur annað markið beint úr aukaspyrnu á 34. mínútu og Bojan Krkic kom Barcelona síðan í 3-0 á 42. mínútu eftir frábært hlaup.

Varamaðurinn Joseba Llorente minnkaði muninn í 3-1 á 67.mínútu en Lionel Messi innsiglaði síðan sigurinn á 88. mínútu eftir sendingu frá Dani Alves.

Real Madrid getur minnkað forskot Barcelona aftur í eitt stig á morgun þegar þeir fá Osasuna í heimsókn á Santiago Bernabeu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×