Fótbolti

Casillas býst við Cole hjá Real Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Iker Casillas, markvörður Real Madrid og spænska landsliðsins, er bjartsýnn á að enski landsliðsmaðurinn Ashley Cole muni gangi í raðir Real Madrid í sumar.

Hermt er að Real sé til í að greiða 30 milljónir punda fyrir leikmanninn en þjálfari Real, Jose Mourinho, þjálfaði Cole á sínum tíma hjá Chelsea.

"Miðað við það sem ég heyri þá lítur þetta vel út. Ég hef aðeins talað stuttlega við fólkið hjá Real en ég er bjartsýnn á að Cole verði leikmaður Real Madrid. Ég held að það sé rétt skref hjá honum að koma til okkar," sagði Casillas.

"Þetta verður síðasti stóri samningurinn hans og hvað er betra en að semja hjá gamla þjálfaranum sínum? Hann veit vel að hann mun ná árangri hjá Jose. Það vita allir að Jose nær því besta út úr mönnum. Ashley þarf samt ekki að vita það enda besti maðurinn í sinni stöðu í heiminum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×