Fótbolti

Spænsku blöðin fara hamförum í umfjöllun sinni um klúður Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo gat ekki leynt vonbrigðum sínum.
Cristiano Ronaldo gat ekki leynt vonbrigðum sínum. Mynd/AFP
Leikmenn Real Madrid hafa væntanlega sleppt því að líta í spænsku blöðin í morgun enda fór svo að spænsku blaðamennirnir fóru hamförum í harðorðri umfjöllun sinni það að dýrasta lið heims skyldi enn einu sinni detta út úr sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Úr leik, bless meistarar, bless Pellegrini," sagði í fyrirsögn Marca sem er söluhæsta íþróttablaðið á Spáni.

„Þetta er það sama ár eftir ár. Þeir hvítu féllu úr leik eftir að hafa mistekist að nýta frábær færi í fyrri hálfleik. Skiptingar Lyon í hálfleik breyttu leiknum, Higuain var enn óheppinn í Evrópu og Kaka komst aldrei í gang," sagði ennfremur í Marca.

Stórslys. Real Madrid gat ekki einu sinni unnið Lyon á Bernabeu," stóð á forsíðu AS sem er annað stórt íþróttablað í Madrid. Blaðamenn AS skrifuðu líka um martröð Real og að Lyon hefði átti skilið að fara áfram.

Fótbolti hefur engan verðmiða," var fyrirsögnin í El Pais og þar var farið ofan í það að Real Madrid eyddi 250 milljónum evra í leikmenn fyrir tímabilið til þess að gulltryggja það að liðið yrði í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Bernabeu. El Pais endar grein sína á þessum orðum: „Fótboltatitlar eru ekki keyptir þeir eru unnir."

Barcelona-blöðin El Mundo Deportivo og Sport voru bæði með sömu fyrirsögn. „KO" eða „Rotaðir" sem er vísun í hugtakið í hnefaleikum.

„Madrid verður ekki í úrslitaleiknum á Bernabeu, verkefni Florentino klikkaði og liðið datt út úr 16 liða úrslitum sjötta árið í röð," sagði í El Mundo Deportivo.

Stóru mistökin" sagði á forsíðu Sport og undir voru myndir af þeim Perez, Pellegrini, Ronaldo og Kaka og hver og einn fékk stutta en grimma umsögn.

„Florentino, niðurbrotinn. Búinn að kasta 300 milljónum fyrir borð."

„Pellegrini, dauðadæmdur. Bernabeu vill að hann verði rekinn."

„Cristiano, niðurlægður. Hann lofaði öllum titlum en hefur þegar tapað tveimur."

„Kaka, næsta vandamál. Hann yfirgaf völlinn hraunandi yfir þjálfarann."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×