Innlent

Telur tillögu meirihlutans bitna á þjónustu við börnin

björk vilhelmsdóttir
björk vilhelmsdóttir

Séra Halldór Reynis­son, verkefnisstjóri fræðslusviðs Þjóðkirkjunnar, segir tillögur meirihluta mannréttindaráðs Reykjavíkur um breytingar á samstarfi skóla og kirkjunnar koma sér á óvart. Hann segist ekki hafa heyrt af óánægju meðal skólastjórnenda varðandi samstarfið.

Nái breytingartillögurnar fram að ganga munu embættismenn trúfélaga ekki lengur starfa á nokkurn hátt í leik- og grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. Samstarfi kirkju og skóla verður hætt, sem og heimsóknir barna í kirkjur og fermingarfræðsla á skólatíma. Þegar leita þarf aðstoðar vegna sálrænna áfalla skal kalla til fagaðila á borð við sálfræðinga frekar en fulltrúa trúfélaga.

Varðandi þá tillögu að fagfólk eins og sálfræðingar eigi að annast áfallahjálp í skólum frekar en prestar segir Halldór að fáir vinni eins mikið með sorg og áföll.

„Við erum fagfólkið,“ segir hann. „Þegar um mjög alvarleg áföll eins og dauðsföll er að ræða eru það mál sem við erum fagaðilar í. Ef það má ekki kalla okkur til að gæta að velferð barnanna er ekki verið að tryggja þeim börnum hina bestu þjónustu.“

Margrét Sverrisdóttir, formaður mannréttindaráðs, segir tillögurnar á gráu svæði og mikilvægt sé að halda áfram með þá vinnu sem nú þegar hafi verið unnin. Foreldrum sé vissulega frjálst að útvega börnunum sínum hverja þá áfallahjálp sem henti, en fulltrúar trúarhópa muni ekki sinna þessum störfum af hálfu skólans á skólatíma.

„Skólinn hefur sitt hlutverk og kirkjan sitt. Hvor stofnun fyrir sig á að virða hlutverk hinnar, en til þess verður að móta skýrar reglur.“

Margrét segir mikilvægt að taka fram hvaða atriði felist ekki í hugmyndum mannréttindaráðs. Hún nefnir þar breytingar á námsefni eins og kristinfræði, jólaföndri, sálmasöng og öðru slíku.

Björk Vilhelmsdóttir, formaður velferðarráðs, segir mestu máli skipta að málið sé unnið í sátt borgar og kirkju. Ekki sé ráðlegt að taka burt samstarf sem verið hafi til staðar í áratugi án þess að hafa um það samráð beggja aðila.

„Það er grundvallaratriði að virða trúfrelsi fólks, en einnig rétt fólks til trúar,“ segir Björk.

sunna@frettabladid.is

séra halldór reynisson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×