Fótbolti

Giggs: Höfum fulla trú á því að við komumst áfram

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ryan Giggs á blaðamannafundinum.
Ryan Giggs á blaðamannafundinum.

„Trúin er svo sannarlega til staðar," sagði Ryan Giggs, leikmaður Manchester United, á blaðamannafundi fyrir stórleikinn gegn FC Bayern í Meistaradeildinni í kvöld.

„Þegar þú ert í búningsherberginu og lítur í kringum þig þá kemur trúin á að við getum unnið þetta. Það búa svo miklir hæfileikar í þessu liði," sagði Giggs.

United hefur tapað tveimur síðustu stórleikjum, fyrri leiknum gegn Bayern og svo leiknum gegn Chelsea um síðustu helgi. Báðum tapaði liðið 2-1.

„Bayern er með gott lið og hefur þar að auki mikla breidd. Liðið er með leikmenn sem geta komið inn og breytt gangi leiksins. Við þurfum að vera varkárir því þeir hafa mikla reynslu í Meistaradeildinni. Í fyrri leiknum sýndum við ekki okkar bestu hliðar en erum ákveðnir í að gera það í þessum leik," sagði Giggs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×