Fótbolti

Eriksen: Ekki tilbúinn fyrir Barcelona

Elvar Geir Magnússon skrifar
Næsti Michael Laudraup?
Næsti Michael Laudraup?

Christian Eriksen hjá Ajax hefur gefið þau skilaboð til Arsenal og Barcelona að hann sé ekki tilbúinn til að fara til risaliðs strax.

Þessi danski leikmaður er einn eftirsóttasti ungi leikmaðurinn í Evrópu og hefur fengið mikið hrós frá goðsögninni Dennis Bergkamp.

„Ég hef lesið í fjölmiðlum að Arsenal og Barcelona vilji fá mig. Þetta eru samt bara sögusagnir enn. Fólk má skrifa það sem það vill en ég hef ekki verið í sambandi við þessi félög," sagði Eriksen í viðtali.

„Ég er of ungur til að yfirgefa Ajax fyrir evrópskt risalið. Ég lék minn fyrsta leik fyrir aðallið Ajax fyrir stuttu og ég á enn margt ólæt. Ég vil verða betri leikmaður hér og ég er ánægður hjá Ajax," sagði Eriksen sem er bjartasta von Dana í boltanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×