Fótbolti

Bojan Krkic með nýjan samning við Barcelona til 2015

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bojan Krkic og Lionel Messi fagna saman marki.
Bojan Krkic og Lionel Messi fagna saman marki. Mynd/AFP
Bojan Krkic er búinn að framlengja samning sinn við Barcelona um tvö ár og er því með samning við spænsku meistarana til ársins 2015. Krkic er enn einn leikmaður Barcelona sem hefur framlengt samning sinn á síðustu vikum og mánuðum.

Auk þess að framlengja samning sinn um tvö ár þá hækkaði Barcelona einnig upphæðina sem kostar að kaupa upp samninginn hans Krkic. Áður gátu félög keypt leikmanninn á 80 milljónir evra en hér eftir mun það kosta 100 milljónir evra að kaupa upp samninginn.

Bojan Krkic er tvítugur framherji sem er búinn að skora 38 mörk á fjórum árum fyrir aðallið Barcelona. Hann kom upp í gegnum unglingastarf Barcelona og bætti á sínum tíma met Lionel Messi þegar hann varð yngsti leikmaður sögunnar til þess að skora fyrir Barcelona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×