Innlent

Gekkst undir lífsýnatöku

Karlmaður sem grunaður er um að hafa ráðist á konu í Hveragerði í lok síðasta mánaðar og slasað hana alvarlega hefur undirgengist lífsýnatöku eftir úrskurð Héraðsdómur Suðurlands þar að lútandi.

Þá hafa fjarskiptafyrirtæki verið skylduð til þess að afhenda lögreglunni upplýsingar um símhringingar og SMS-skilaboð úr þremur farsímum sem maðurinn hafði undir höndum. Hann hafði áður neitað lífsýnatöku og aðgangi að upplýsingum. - jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×