Fótbolti

Næsti Laudrup orðaður við Barcelona

Elvar Geir Magnússon skrifar
Christian Eriksen í leiknum með Ajax gegn Juventus.
Christian Eriksen í leiknum með Ajax gegn Juventus.

Njósnarar frá spænska stórliðinu Barcelona fylgdust með Christian Eriksen, leikmanni Ajax, í Evrópuleik gegn Juventus í síðustu viku. Eriksen er 18 ára og ein bjartasta von Dana.

Morten Olsen, landsliðsþjálfari Danmerkur, segir að leikmaðurinn ungi fái sitt fyrsta tækifæri með landsliðinu í þessari viku.

Dennis Bergkamp hefur þegar talað við Arsene Wenger, stjóra Arsenal, og mælt með Eriksen sem er miðjumaður.

Ef Eriksen verður í leikmannahópi Danmerkur sem fer á HM í Suður-Afríku verður hann yngsti leikmaður Dana síðan Michael Laudraup steig fyrst fram á sjónarsviðið á 18 ára afmæli sínu.

Eriksen gekk til liðs við hollenska liðið Ajax frá OB 2008.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×