Fótbolti

Þjálfari varaliðsins ráðinn í stað Valverde hjá Villarreal

Ómar Þorgeirsson skrifar
Ernesto Valverde.
Ernesto Valverde. Nordic photos/AFP

Knattspyrnustjórinn Ernesto Valverde var rekinn frá spænska félaginu Villarreal eftir tap gegn Osasuna í gærkvöldi en forráðamenn félagsins hafa nú tilkynnt að Juan Carlos Carrido stýri félaginu út tímabilið.

Villarreal situr í tíunda sæti deildarinnar og var aðeins búið að tapa einum af síðustu sjö leikjum þegar félagið tapaði í gær en eftirmaður Valverde í starfi var áður þjálfari varaliðs félagsins.

Knattspyrnustjórinn danski Michael Laudrup var sterklega orðaður við stöðuna í gærkvöldi en samkvæmt spænskum fjölmiðlum mun hann líklega koma til með að taka við stjórn félagsins næsta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×