Körfubolti

Paul gæti spilað í nótt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Stuðningsmenn New Orleans Hornets geta farið að taka gleði sína á ný því Chris Paul verður mættur á völlinn með liðinu von bráðar.

Hann gæti snúið aftur í nótt gegn Dallas eða á miðvikudaginn gegn Cleveland.

Paul hefur misst af síðustu 25 leikjum Hornets eftir að hann fór í aðgerð á hné. Hann hafði misst af 8 leikjum fyrr á tímabilinu vegna ökklameiðsla.

Hornets var 25-21 áður en Paul meiddist en lið tapaði síðan 12 af 15 leikjum án hans og á varla möguleika á sæti í úrslitakeppninni lengur.

 

 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×