Innlent

Segja umferðarþunga rekast á náttúruvernd

Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs leggur til í verndaráætlun fyrir þjóðgarðinn að ýmsum slóðum og vegum verði lokað fyrir umferð.

Í sameiginlegu svari stjórnar þjóðgarðsins til allra þeirra ríflega tvö hundruð aðila sem gerðu athugasemdir við upphaflega verndaráætlun er bent á að markmið með stofnun náttúruverndar­svæðis sé að vernda landslag, lífríki, jarðmyndanir og menningarminjar.

„Í seinni tíð hefur umferð ökutækja um svæðið aukist til muna og kortlögðum akstursleiðum um þjóðgarðinn fjölgað að sama skapi," segir stjórnin. „Þótt aðgengi almennings að þjóðgarðinum með þessum hætti sé almennt af hinu góða er svo komið að fjölgun ökuleiða rekst á markmið náttúruverndar og áherslu á verndun víðerna með þeirri upplifun sem þau bjóða. Stjórn þjóðgarðsins hlaut því að taka af skarið."

Meðal þeirra fjölmörgu sem sendu inn athugasemdir við áætlun stjórnar þjóðgarðsins er svokölluð „ferðafrelsisnefnd" Eyjafjarðardeildar ferðaklúbbsins 4x4. Hún mótmælir sérstaklega lokun fjögurra akvega. Þetta eru leið norðan Dyngjufjalla, slóði sunnan Vaðöldu, stytting inn á veg um Dyngjufjalladal og vegur um gömlu vöðin á Gæsavatnaleið.

„Höfundar áætlunarinnar ætla að komast upp með að LOKA leiðum án rökstuðnings og allrar umfjöllunar," segir í athugasemdum Eyjafjarðardeildarinnar, sem meðal annars ræðir um afar umdeilda lokun vegar um Vonarskarð. „Þessi leið liggur einungis um grjót og sanda (hverfur jafnvel milli ára) og akstur um þessa leið í Vonar­skarði truflar alls ekki göngumenn gangandi á Snapadal eða á hverasvæðinu."

Þá gagnrýna jeppamennirnir að leggja eigi áherslu á almenningssamgöngur í stað einkabíla:

„Í rannsóknargögnum Vegagerðar ríkisins kemur fram að akstur einnar stórrar bifreiðar sé jafn slítandi á vegi og nokkrar tugþúsundir einkabíla."

Eyjafjarðardeildin segist ekki eingöngu hafa eigin hagsmuni í huga. „Þó svo að telja megi að við höfum einungis sjónarmið jeppamennsku að leiðarljósi, þá er það staðreynd að mjög fáir gestir, nýtingaraðilar (smalar, veiðimenn og svo framvegis), og einnig starfsmenn þjóðgarðsins munu vart komast leiðar sinnar án vegslóða innan hans og góðra aðkomuleiða."

Eins og fram hefur komið ætla ýmsir hópar að koma saman í Vonarskarði á morgun til að mótmæla áætlun stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs. Ekki hefur náðst tal af formanni stjórnarinnar né umhverfisráðherra sem taka á ákvörðun um áætlunina.

gar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×