Innlent

Bretar skera herinn niður

Hermenn.
Hermenn.

Bresk stjórnvöld undirbúa nú stórfelldan niðurskurð í útgjöldum til hernaðarmála.

Sérfræðingar telja að fækkað verði í her landsins um allt að 30.000 hermenn, en þeir eru nú 175.000.

Ýmis kostnaðarsöm áform um kaup hergagna verði lögð á hilluna til að spara gríðarlegar fjárhæðir.

Meðal þess sem nú er til endurskoðunar eru hugmyndir um að endurnýja kjarnorkukafbáta fyrir 3.600 milljarða króna og kaupa ný flugmóðurskip fyrir 1.000 milljarða. - pg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×