Innlent

Fimm manna þjófagengi handtekið

mennirnir teknir Mennirnir voru handteknir í gærmorgun í íbúð í Árbæjarhverfinu. Hópur lögreglumanna á mörgum bílum gekk hratt til verks og gengu handtökurnar fljótt og vel fyrir sig. Hér er einn hinna grunuðu leiddur út í lögreglubíl.
mennirnir teknir Mennirnir voru handteknir í gærmorgun í íbúð í Árbæjarhverfinu. Hópur lögreglumanna á mörgum bílum gekk hratt til verks og gengu handtökurnar fljótt og vel fyrir sig. Hér er einn hinna grunuðu leiddur út í lögreglubíl.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm karlmenn í Árbæjarhverfi í gærmorgun vegna rannsóknar á innbrotum í Árbæ og á Ártúnshöfða að undanförnu. Samkvæmt lýsingum sjónarvotta þusti hópur lögreglumanna inn í íbúð í hverfinu og leiddi hina grunuðu út í járnum. Mennirnir voru í haldi síðdegis í gær og stóðu yfirheyrslur þá enn yfir.

Mennirnir eru íslenskir, á aldrinum frá tvítugu til þrítugs. Þeir hafa allir komið við sögu lögreglu áður.

Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir að þrjár húsleitir hafi verið gerðar í gær og þegar hafi tekist að tengja mennina við þrjú innbrot, en áfram sé unnið í málinu.

„Við höfum þegar fundið sönnunargögn, sem eru hlutir úr þremur innbrotum. Um er að ræða tölvubúnað, skjái og myndvarpa.“

Árni segir að þýfið sé úr innbrotum í tvö fyrirtæki og skóla. Þjófarnir hafi greinilega verið á höttunum eftir auðseljanlegum hlutum.

Spurður hversu mörgum innbrotum mennirnir séu grunaðir um að eiga aðild að segir Árni Þór að lögregla rannsaki nú öll óupplýst innbrot með hliðsjón af handtöku þeirra. „Við vitum ekki enn hvað þeir eiga aðild að mörgum þeirra.“

Árni Þór segir að innbrotum á svæðinu hafi fjölgað talsvert í ágúst miðað við mánuðina á undan. Fjöldi þjófnaðarbrota fari að hluta eftir því hverjir gangi lausir hverju sinni. Afkastamiklir menn geti valdið miklum usla á skömmum tíma og fjölgað innbrotum verulega.

„En á svæðinu austan Elliðaáa hefur innbrotum fækkað á árinu, frá því sem var í fyrra, og við vonum að svo verði áfram. Lögreglan hvetur fólk til að ganga tryggilega frá húsum sínum og skilja ekki sýnileg verðmæti eftir í bílum.“

jss@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×