Fótbolti

Ferguson: Við vorum ekki nógu góðir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, sagði eftir tap sinna manna gegn FC Bayern í kvöld að hans lið hefði einfaldlega ekki spilað nógu vel.

„Ef ég á að vera heiðarlegur þá spiluðum við bara ekki nógu vel. Við vorum alltaf að gefa frá okkur boltann og það er okkur sjálfum að kenna að við töpuðum," sagði Skotinn.

„Bayern var betra liðið, við getum ekki kvartað yfir því. Við erum samt miklu betra lið en við sýndum í kvöld. Fyrra markið þeirra var heppni og svo var skelfilegt að gefa þeim seinna markið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×