Fótbolti

Higuain líklega frá í tvo mánuði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Svo gæti farið að argentínski framherjinn Gonzalo Higuain spili ekki með Real Madrid næstu mánuðina en hann er slæmur í bakinu.

Hann mun nú hitta sérfræðing sem sker úr um hvort hann þurfi að fara í aðgerð vegna meiðslanna. Fari Higuain undir hnífinn er hann kominn í langt jólafrí.

Læknar Real Madrid hafa þegar úrskurðað að Higuain þurfi að fara í aðgerð en félagið ákvað samt að fá annað álit.

Þetta eru ágæt tíðindi fyrir Frakkann Karim Benzema sem ætti að fá langþráð tækifæri hjá félaginu í fjarveru Higuain.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×