Innlent

Segja mikilvægt að ræða peningamálin

Gylfi Arnbjörnsson
Gylfi Arnbjörnsson

ASÍ og Samtök atvinnulífsins eru sammála um að umræða um nýja peningamálastefnu, sem Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, hóf í Fréttablaðinu í gær, sé afar mikilvæg. Forsvarsmenn samtakanna eru sammála um að botn verði að fá í umræðu um gjaldmiðlamálin.

„Þetta er mikilvæg umræða sem þarf að fara í gang,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Hann bendir á að aðildarfélög ASÍ hafi ekki treyst sér til að gera kjarasamninga til langs tíma þar sem menn séu brenndir af óstöðugleikanum sem fylgi krónunni.

„En eins og menn vita verður ekki skipt hér um gjaldmiðil á næstu vikum eða mánuðum. Það sem skiptir máli núna er að setja niður hvernig við ætlum að varða leiðina að því vonandi að taka upp evruna,“ segir Gylfi.

„Ég lít svo á að tilrauninni með krónuna sé lokið,“ segir Gylfi. Nú þurfi að eiga samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og vonandi Evrópska seðlabankann til að losa um gjaldeyrishöftin.

„Við fögnum því að Árni Páll vilji hafa forgöngu um að setja í gang samráð eða umræðu um peningastefnuna,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann segir miklu skipta að móta nýja peningamálastefnu sem fyrst.

Samtökin voru gagnrýnin á Seðlabanka Íslands þegar bankinn hækkaði ítrekað vexti til að reyna að sporna við verðbólgunni í aðdraganda hrunsins. Vilhjálmur segir að þá strax hafi verið augljóst að framkvæmd peningastefnunnar hafi ekki verið að virka.

Hann segir mikilvægt að aflétta gjaldeyrishöftunum sem fyrst til að opna fjármagnsmarkaði. Þá geti gengi krónunnar byggst á raunveruleikanum, ekki gerviumhverfi sem gjaldeyrishöftin skapi.

Það er einsýnt að það þarf fleiri tæki til að viðhalda stöðugleika en stýrivexti Seðlabankans eina, segir Vilhjálmur. Til dæmis þurfi ábyrgð stjórnvalda á hagstjórninni að vera meiri en hún hafi verið.

brjann@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×