Fótbolti

Zlatan Ibrahimovic meiddur á kálfa - verður ekki með á móti Arsenal

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic fagnar öðru marka sinna í fyrri leiknum á móti Arsenal.
Zlatan Ibrahimovic fagnar öðru marka sinna í fyrri leiknum á móti Arsenal. Mynd/Getty Images
Svíinn Zlatan Ibrahimovic getur ekki spilað með Barcelona á móti Arsenal í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar vegna meiðsla. Zlatan er einnig tæpur að ná El Clasico leiknum á móti Real Madrid um næstu helgi.

Zlatan Ibrahimovic fann fyrir óþægindum í kálfa í upphitun fyrir leikinn á móti Athletic Bilbao gærkvöldi og tók af þeim sökum ekkert þátt í leiknum. Þjálfarinn Pep Guardiola sagði eftir leikinn að sænski framherjinn hafi tognað á kálfavöðva.

Zlatan Ibrahimovic skoraði bæði mörk Barcelona í fyrri leiknum sem endaði með 2-2 jafntefli. Seinni leikur liðanna fer fram á Nývangi á þriðjudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×