Fótbolti

Tiago lánaður til Atletico Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Juventus hefur lánað portúgalska miðjumanninn Tiago til spænska félagsins Atletico Madrid. Tiago verður á Spáni út leiktíðina.

Portúgalinn hafði aðeins leikið í sjö af átján leikjum Juventus í vetur. Hann vildi því komast annað þar sem hann fengi að spila. Juve varð við ósk hans.

Tiago kom til Madridar í dag og fór beint í læknisskoðun. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Atletico fær í janúarglugganum.

Tiago sjálfur er hæstánægður með þessa lendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×