Fótbolti

Sigrar hjá Real og Barca

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi var í stuði í gær.
Messi var í stuði í gær.

Það er óbreytt staða á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir leiki gærkvöldsins. Bæði Barcelona og Real Madrid unnu leiki sína.

Barcelona tók mikla áhættu með þvi að keyra í leikinn gegn Osasuna og spila eftir að hafa nánast ekki hitað upp. Börsungar unnu samt leikinn, 3-0, með tveimur mörkum frá Lionel Messi og einu frá Pedro.

Real Madrid heldur pressunni á Börsungum og vann afar sterkan sigur á Valencia, 2-0. Mörkin komu reyndar ekki fyrr en Valencia missti mann af velli.

Þá skoraði Ronaldo i tvígang en hann og Messi skora endalaust þessa dagana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×