Innlent

Aftengd vatnslögn til borgarlögmanns

Hjónin í Perluhvammi Neita að senda umsókn til Orkuveitunnar vegna tengingar við kaldavatnslögn og borga tilheyrandi tengingargjald og annan kostnað. Þau bera vatn í fötum úr Leirvogsá.Fréttablaðið/Vilhelm
Hjónin í Perluhvammi Neita að senda umsókn til Orkuveitunnar vegna tengingar við kaldavatnslögn og borga tilheyrandi tengingargjald og annan kostnað. Þau bera vatn í fötum úr Leirvogsá.Fréttablaðið/Vilhelm

Borgarlögmaður skoðar nú mál fjölskyldunnar sem Orkuveitan aftengdi kalda vatnið hjá í síðustu viku.

„Við leituðum til skrifstofu borgar­stjóra í þeirri von að Jón Gnarr gæti leyst úr þessu máli. Aðstoðarkona hans sagði að málið væri komið til skoðunar hjá borgarlögmanni, sem myndi gefa umsögn um það innan tíðar," segir Ingibjörg R. Þengilsdóttir, sem býr nú við það ásamt eiginmanni sínum, Jóni Jóhanni Jóhannssyni, og tólf ára syni að hafa ekkert rennandi vatni í íveruhúsi sínu í Perluhvammi á Álfsnesi. Hjónin ætla að byggja einbýlishús á landinu og búa nú til bráðabirgða í vinnuskúr sem þau tengdu við gamla kaldavatnslögn sem tilheyrir lóðinni.

Undanfarin ár hafa nemendur Waldorf-skólans komið á land hjónanna til að stunda þar nám í lífsleikni undir leiðsögn kennara sinna. „Það gat nú ekki hafa farið framhjá starfsmönnum Orkuveitunnar að hingað kom á hverjum degi í síðustu viku langferðabíll með um fimmtíu manna hóp. Samt aftengdu þeir vatnið," segir Ingibjörg, sem kveður skólastjóra Waldorf-skólans hafa hringt í lögmann Orkuveitunnar.

„Skólastjórinn útskýrði að þessi lokun bitnaði á börnunum. Úr varð að Orkuveitan sendi hópnum um sextíu hálfs lítra brúsa af drykkjar­vatni og um tonn af öðru vatni. Það kom að vísu of seint fyrir hópinn því við vorum búinn að bjarga þessu í millitíðinni. En syni mínum finnst þetta vatn æðislegt," segir Ingibjörg.

Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar, segir fyrirtækinu hafa borist spurnir í síðustu viku af skólahópi sem var á ferð í Perluhvammi.

Hópurinn hafi reiknað með að komast í kalt vatn og ekki vitað af vandkvæðum á því. „Því var bjargað," segir Eiríkur

Varðandi deiluna sjálfa segir Eiríkur það vera grundvallar­sjónarmið að viðskiptavinir eigi að njóta jafnræðis.

„Skyldur og réttindi eru býsna glöggt skilgreind í lögum og reglugerð að mati OR, sem telur sig vera að vinna eftir þeim," segir hann og vísar í bréf sem OR sendi lögmanni hjónanna um miðjan september. Þar segir að hús sem tengt hafi verið kaldavatnsheimæð á lóðinni hafi verið fjarlægt og heimæðin síðan aftengd.

„Síðar er komið með vinnuskúr inn á lóðina og kaldavatnsæðin endurtengd og vatnstaka hafin. Sú aðgerð, það er að tengja sig inn á kaldavatnslögn og hefja vatnstöku án umsóknar til Orkuveitunnar, er óheimil og breytir þar engu hvort heimæð er í eigu lóðarhafa eða Orkuveitunnar," segir í bréfi fyrir­tækisins.

gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×