Fótbolti

Ronaldo spilar líklega um helgina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, varð fyrir meiðslum í leiknum gegn Barcelona síðasta mánudag og var óttast að hann myndi missa af einhverjum leikjum.

Bati hans hefur verið vonum framar og líklegt er að hann muni spila gegn Valencia um helgina.

Stefnt er að því að Ronaldo taki fulla æfingu með liðinu á morgun og komist hann óskaddaður í gegnum hana mun hann væntanlega spila um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×