Körfubolti

NBA: Fjórir sigrar í röð hjá Bulls

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Derrick Rose var sjóðheitur í nótt.
Derrick Rose var sjóðheitur í nótt.

Vinny Del Negro virðist vera á góðri leið með að bjarga þjálfarastarfi sínu hjá Chicago Bulls en Bulls vann í nótt góðan sigur á Orlando Magic. Þetta var fjórði sigur Chicago í röð.

Þetta var líka aðeins þriðja tap Orlando á útivelli í vetur.

Derrick Rose fór mikinn í liði Bulls og skoraði 30 stig, þar af 20 í síðari hálfleik.

Alls fóru tólf leikir fram í nótt og má sjá úrslitin hér að neðan.

NJ Nets-Cleveland  86-94

Miami-Charlotte  97-107

Indiana-Minnesota  122-111

Washington-San Antonio  86-97

Boston-Toronto  103-96

Chicago-Orlando  101-93

New Orleans-Houston  99-95

Milwaukee-Oklahoma  103-97

Phoenix-Memphis  103-128

Utah-Denver  95-105

Portland-Golden State  105-89

Sacramento-Dallas  91-99

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×