Körfubolti

NBA: Miami, Portland og LA Clippers með sigra

Elvar Geir Magnússon skrifar
Miami Heat vann.
Miami Heat vann.

Þrír leikir voru í NBA-deildinni í körfubolta nýliðna nótt.

Dwyane Wayde fékk góðar móttökur þegar Miami Heat heimsótti Chicago Bulls. Hann skoraði aðeins 12 stig í leiknum en Miami vann þó öruggan sigur 103-74 þar sem Jermaine O'Neal var með 24 stig.

Portland vann Dallas 101-89 en þetta er í þriðja sinn sem liðið leggur Dallas á tímabilinu. LaMarcus Aldridge var með 20 stig fyrir Portland en stigahæstur hjá Dallas var Caron Butler með 25 stig.

Þá vann LA Clippers sigur á Houston 99-93 þar sem Craig Smith skoraði 25 stig.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×